Letihaugarnir nenna ekki, þeir duglegu fara strax.

Nú fara garða úrgangs pokarnir að sjást víða (sjást reyndar víða nú þegar). Fólk heldur að það sé laust allra mála bara með því að setja ruslið í svartan poka og henda í hrúgu einhverstaðar.

Svo verður með þetta eins og jólatrén sem fólk lætur útfyrir túnfótinn (garðfótinn), og bíður eftir fyrsta rokinu, þá fer þetta allt á fljúgandi ferð, bílar mæta jólatrjám á 50km hraða eftir miðri götunni jafnvel.

Eins verður þetta með ruslið, nú fer að hvessa og ef þessir "duglegu" og sýnilega nískustu sem ætluðu að vera fljótir að koma sínu rusli í förgun á kostnað samborgaranna, verða ekki þeir fyrstu til að taka "sína" poka og fara með í förgun ó nei, þeir taka sénsinn á að hann "Einhver" geri það fyrir þá, þeir fara nú ekki að spandera í kerruleigu til að hengja aftan í 10 milljóna kr. myntkörfulána jeppann sinn. En hr. Einhver dó í fyrra og fór jarðarförin fram í kyrrþey að ósk Einhvers.

Þannig að nú verður Sérhver að hirða upp eftir sig og koma í förgun hjá Sorpu átvagli (hún bókstaflega étur allt,,,líka naglaspýtur).

Sanniði til bráðum förum við að mæta svörtum ruslapokum á 50km hraða, eftir miðri götunni og getum ekki ákveðið hvoru megin við pokann við eigum að aka.....svo við bara ökum yfir pokann með af klipptu trjágreinunum og vonum að við skemmum ekki undirvagninn á bílnum.

Þannig að nú er bara að halda sínu "garðhreinsirusli" í garðinum áfram og skila því í Sorpu til urðunar eða endurvinnslu (trjátætarann t.d.)

Kreppan heggur ekki bara í veski borgarbúa hún heggur líka í sjóði borgarinnar og voru þeir ekki bústnir fyrir.

Góðar stundir.


mbl.is Garðaúrgangurinn verður látinn liggja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hund fúlt hvað vantaði lítið uppá

Ég sver það ég gerði sem ég gat. Ég horfði ekki á leikinn. Ekki einu sinni þó ég heyrði í fréttum á Stöð 2 hver staðan væri. En kannski var það nóg. Ég stóð nefnilega upp og fór að sofa fram að vinnu. Ég er farinn að halda að það að ég hafi heyrt um stöðuna í sjónvarpinu hafi sennilega dugað til að eyðileggja þetta allt. En hvað um það þetta er leikur sem ég verð að finna einhverstaðar endursýndan, hörku leikur.

Ég er ekkert mikið að hafa fyrir því að óska sigurvegurunum til lukku en samt Chelsea fylgjendur til lukku með ykkar menn.


mbl.is Chelsea komið í undanúrslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilega páska þeir sem gleymdu að kaupa egg með málsháttum...

...mega velja einn hér!
Hér koma nokkrir málshættir, eða með öðrum orðum. Útúrsnúningar og spaug:
Betra er að ganga fram af fólki en björgum.
Betra er að ráða menn með réttu ráði en ráðamenn.
Léttara er að sóla sig en skó.
Betri er einn fugl í sósu en tveir í frysti.
Ekki er aðfangadagur án jóla
Blankur er snauður maður.
Lengi lifa gamlar hræður.
Betra er langlífi en harðlífi.
Sá hlær oft sem víða hlær.
Margur sefur yfir sig sem vaknar ekki á réttum tíma.
Rangt er alltaf rangt, það er rétt.
Margur hefur farið flatt á hálum ís
Sjaldan er góður matur of oft tugginn.
Heima er best í hófi.
Betri eru læti en ranglæti
Betri er uppgangur en niðurgangur.
Oft er virtur maður ekki virtur viðlits.
Enginn veit sína kæfuna fyrr en öll er
Betra er að standa á eigin fótum en annarra.
Þegar neyðin er stærst er hjálpin fjærst.
Oft er grafinn maður dáinn.
Oft veldur lítill stóll þungum rassi.
Oft er bankalán ólán í láni.
Oft eru læknar með lífið í lúkunum.
Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur frestað lengur.
Enginn verður óbarinn boxari.
Oft er dvergurinn í lægð.
Einsdæmi er að dæmigerðar dæmisögur séu dæmdar dæmalausar.
Sjaldan fellur gengið langt frá krónunni.
Illu er best ólokið.
Fátt smátt gerir lítið eitt eða ekki neitt.
Ekki dugar að drepast.
Eitt sinn skal hver fæðast.
Sjaldan fellur róninn langt frá flöskunni.
Blindur er sjónlaus maður.
Bændur eru bændum verstir og neytendum líka.
Eftir höfðinu dansar limurinn.
Flasa er skalla næst.
Margur slökkviliðsmaðurinn er eldklár.
Margur geispar golunni í blankalogni.
Sjaldan fara sköllóttir í hár saman.
Oft eru bílstjórar útkeyrðir.
Betra er að vera sí-virðulegur en svívirðilegur.
Margur fer yfir Strikið - í Kaupmannahöfn
Oft fýkur í menn sem gera veður útaf öllu.
Flestar gleðikonur hafa í sig og á.
Fiskisagan flýgur en fiskimaðurinn lýgur.
Oft láta bensínafgreiðslumenn dæluna ganga.
Betra er að hlaupa í spik en kekki.
Nakinn er klæðalaus maður.
Margur miljónamæringurinn á ekki baun í bala - bara peninga.
Sjaldan eiga fiskar fótum fjör að launa.
Minkar eru bestu skinn.
Margur nautabaninn sleppur fyrir horn.
Betra er að drepa tímann en sjálfan sig.
Betra er að ná áfanga en að ná fanga.
Margur leggur "mat" á disk.
Hungraður maður gerir sér mat úr öllu.
Betra er að vera eltur en úreltur.
Oft kemst magur maður í feitt.
Oft eru lík fremur líkleg.
Betra er áfengi en áfangi.
Ei var hátíð fátíð í þátíð.
Margur boxarinn á undir högg að sækja.
Betri eru kynórar en tenórar.
Betra er að sofa hjá en sitja hjá.
Oft verða slökkviliðsmenn logandi hræddir.
Til þess eru vítin að skora úr þeim.
Oft fer bakarinn í köku, ef honum er gefið á snúðinn.
Auðveldara er að fá leigt í miðbænum en guðanna bænum.
Oft fara hommar á bak við menn.
Oft eru dáin hjón lík.
Hagstæðara er að borga með glöðu geði en peningum.
Betra er að fara á kostum en taugum.
Greidd skuld, glatað fé.
Margri nunnu er "ábótavant".
Margur bílstjórinn ofkeyrir sig.
Oft hrekkur bruggarinn í kút.
Margur bridsspilarinn lætur slag standa.
Oft er lag engu lagi líkt.
Oft svarar bakarinn snúðugt.
Betri er utanför en útför.
Margur fær sig fullsaddan af hungri.
Það er gömul lumma að heitar lummur seljist eins og heitar lummur.
Oft eru bílstjórar vel á veg komnir.
Oft fara bændur út um þúfur.
Víða er þvottur brotinn.
Oft fer presturinn út í aðra sálma.
Betra er að teyga sopann en teygja lopann
Margur bóndinn dregur dilk á eftir sér

Kvittun fyrir syndir.

Svo er bara að bíða og sjá hvenær þeir veifa innleggsnótunni frá Landsbankanum og kvittun frá FL um að hafa lagt þetta inn á þá. Hef samt grun um að þeir tali um að skila þessu (þó þeir eigi ekki fyrir þessu) en voni að enginn fylgi því eftir að fylgjast með framvindu málsins.

Þið sem hafið aðstöðu og tíma til að fylgjast með látið mig vita.


mbl.is Styrkir endurgreiddir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tungumálaörðugleikar?

Þetta hljóta bara að vera tungumálaörðugleikar.

Bara af því að þetta er uppáhalds keppandinn minn þó hann sé reyndar í "röngu" liði.

Liðið mitt er alveg með liðónýta ökumenn.

Annars bara góður fyrir helgina.


mbl.is Hamilton missir öll stigin - dæmdur úr leik í Melbourne
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki kominn....

... tími á að þetta skítseyði drulli sér úr ASÍ og sæki um vinnu hjá Vinnuveitendum?

Þetta er maðurinn sem sagði að vinnuveitendur hefðu ekki efni á launahækkunum til starfsmanna sinna. Þetta er maðurinn sem á að vera í forsvari fyrir að verja launþegana fyrir vinnuveitendum ef svo ber undir.

Þarna sýnir hann sitt rétta andlit, leggur vopn  í hendur vinnuveitendum sem geta bent á fordæmið, að fari starfsmaður í pólitíska baráttu, þá geta vinnuveitendur bent á fordæmið og rekið viðkomandi starfsmann sýnist þeim svo.

Nei ég segi það, þessi maður er ROTTA og allir sem þekkja rottur vita að þær bera með sér sjúkdóma, nema hvað þessi ROTTA er einn stór smitsjúkdómur. Það sem þarf að gera í ASÍ er það sama og gert var í VR. Hreinsa út. Spillingin er orðin svo augljós að menn eins og Gylfi Arnbjörnsson eru hættir að telja sig þurfa að fela hana.

Ekki gaf ég þessum manni umboð til að afþakka þá launahækkun sem ég átti að fá um sl. mánaðarmót, en hann afþakkaði hana samt. Það voru hans mótherjar í atvinnulífinu og aðrir verkalýðsforingjar sem það er að þakka, að nú eru fyrirtæki að borga þessa launahækkun, þeir sem geta það. Mín krafa er sú að þessi maður sé búinn að sýna það að hann er algjörlega vanhæfur sem formaður og ætti með réttu að segja af sér embætti sem æðstráðandi innan verkalýðshreyfingarinnar, þvílíkt er klúður hans búið að vera, þó þetta bætist ekki ofan á.

Ég krefst þess að þetta skítseyði segi af sér tafarlaust, og án nokkurs starfslokasamnings. Hafi hann einhverntíma átt rétt á honum þá er hann búinn að fyrirgera rétti á honum.


mbl.is Fordæma uppsögn Vigdísar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með mig.

Er ég ekki kominn samstundis á skrá hjá Lánstrausti eða hvað það mafíuapparat heitir ef ég lendi í vanskilum. Þetta fyrirtæki hlýtur að hafa farið þar á skrá eða er gerður munur á einstaklingi og fyrirtæki þegar svoleiðis upplýsingar eru seldar?

Svari þeir sem vita betur.

PS reka þann sem neitar að gefa upplýsingar um viðskiptahætti fyrirtækja í eigu ríkisins.

Góðar stundir.


mbl.is Neita að upplýsa afskriftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var mikið...

Ég held að hann heiti Ragnar sem er búinn að berjast fyrir þessu í mörg ár og satt best að segja þá hélt ég að hann kæmist aldrei lengra, en nú er búið að ákveða að þetta verði rannsakað aftur og er það gott því ég held að lögreglan hafi hlaupið á sig og farið auðveldustu leiðina út úr þessu. Annan þessarra drengja þekkti ég á þessum tíma og mér fannst þetta "frekar furðuleg" afgreiðsla á málinu á sínum tíma.

Vona svo sannarlega að hið rétta komi í ljós því ég hef enga trú á að þessir strákar hafi tekið líf sitt sjálfviljugir.

Megi minning þessarra drengja lifa sem lengst.


mbl.is Andlátið skoðað aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver á hvað.

Eigenda upptalning í Straumi - Burðarás vekur nokkrar spurningar hjá mér.

Hver á t.d. Samson Global Holdings S.a.r.l?
Hver á t.d. Landsbanki Luxembourg S.A.?
Hver á t.d. Straumur-Burðarás Fjárfest hf?
Hver á t.d. Citigroup Global Markets Inc?
Hver á t.d. Falcon Family L.P.?

Einhvernvegin læðist að mér sá grunur að mennirnir á bakvið þessi félög öll séu sömu mennirnir og eru sagðir aðaleigendur Straums - Burðaráss.

Kæmi mér allavega ekki á óvart þó þarna kæmu fyrir sömu nöfnin aftur og aftur.

Enn ein svikamyllan fallin.

Góðar stundir.


mbl.is Ríkið tekur Straum yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíðskan innan ASÍ

Þetta kalla ég Davíðskuna (þarna sést upp til hverra þeir líta) að stilla þeim svona upp við vegg sem ekki eru sammála Gylfa. Ef þú ert ekki sammála mér þá ertu á móti mér......ég meina hvar er lýðræðið í verkalýðshreyfingunni?

ASÍ forystan er skíthrædd um að nú reyni á hana og hún hefur ekki getuna, núna fer að reyna á þá í forystunni þegar fyrirtækin fara að svína á fólki í krafti þess að það eru 15 þúsund á atvinnuleysisskrá, og "væni minn ef þú ert með eitthvað múður " þá ertu bara rekinn, hvað þá ef fólk vill að samningar séu haldnir, en þá á fólk að geta leitað til síns stéttarfélags um leiðréttingu, en þar kann fólk ekki til verka því þeir eru búnir að vera að sleikja á þeim rassgatið undanfarin ár, í kaffi samsætum og utanlandsferðum en þurfa núna að standa upp í hárinu á þessum herrum. Sjáið þið formann VR mæta á fund í Kaupþing og berjast fyrir réttindum gjaldkerans? Ég er ekki að sjá hann geta það af fullri einlægni og með hagsmuni gjaldkerans í huga. Fyrirtækið sem borgaði honum milljónir á ári í laun fyrir "nefndarsetu" og svo biður hann um endurkjör, sem sýnir bara hvað hann er orðinn siðblindur maður því miður.


mbl.is Sjá ekki ástæðu til að svara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talsmaður einkaframtaksins?

Dæmigerður fulltrúi einkaframtaksins, alltaf verið á ríkisjötunni eftir að skóla lauk. Akkúrat það sem frjálshyggjan þarf  á að halda núna. Hvernig væri nú ef Íhaldið færi að leita uppi fólk sem hefur staðið í einkabissness alla sína hunds og kattar æfi en er ekki alið upp á ríkisjötunni og hefur ekki snefil af þekkingu að þurfa að bjarga sér sjálft þegar harðnar á dalnum. Það er ekki nóg að lifa eftir einhverjum "kenningum" sbr. Hannes Hólmstein, við vitum öll hvernig það endar. En þar spila launin sennilega eitthvað inní.


mbl.is Vill 1.-2. sæti á D-lista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andskotann veit hann um bananalýðveldi?

Hefur hann, unnið hér, búið hér eða yfir höfuð komið hingað til lands?

Lýðskrumari af stærstu tegund og áróðurspési.


mbl.is „Ísland er ekkert bananalýðveldi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur og Volvoinn

Þetta er Sunnudagsbíltúrs bíllinn hans og því skyldi hann ekki viðra hann á Sunnudögum. Vona ég svo að Þorgerður sé "frelsinu fegin". Var hún læst þarna inni þar til í dag???????
mbl.is „Farin út í frelsið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki bara aðalliðið

Svo læra börnin sem fyrir þeim er haft. Þeir taka aðalliðið sér til fyrirmyndar og þetta er niðurstaðan, en við skulum vona að Eyjólfur hressist og Guðlaugur líka.
mbl.is Guðlaugur lék með Liverpool gegn Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað skyldi bensínið lækka mikið við þessi tíðindi

Hvað skyldi bensínverð lækka mikið við styrkingu krónunnar, það hefur alltaf hækkað samstundis við veikingu krónunnar........tja mar spyr sig
mbl.is Gengi krónunnar styrktist um 2,01%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seðlabankastjórana burt og....

...Mér finnst að neðantaldir eigi að hverfa úr Seðlabankanum líka þeir sváfu allir á verðinum.

Bankaráð, kjörið af Alþingi, 13. júní 2007:
Kosning sjö manna og jafnmargra varamanna í bankaráð Seðlabanka Íslands til fyrsta þings eftir næstu almennu alþingiskosningar, að viðhafðri hlutfallskosningu, skv. 26. gr. laga nr. 36, 22. maí 2001 um Seðlabanka Íslands. Bankaráð velur formann og varaformann úr eigin röðum.

Aðalmenn
Halldór Blöndal, formaður
Jón Sigurðsson, varaformaður
Erna Gísladóttir
Ragnar Arnalds
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Jónas Hallgrímsson
Valgerður Bjarnadóttir (frá 4. nóvember 2008) 

Varamenn
Halla Tómasdóttir
Birgir Þór Runólfsson
Tryggvi Friðjónsson
Sigríður Finsen
Ingibjörg Ingvadóttir
Guðný Hrund Karlsdóttir (kosin 3. október 2007 í stað Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur)
Guðmundur Örn Jónsson  (frá 4. nóvember 2008)

Hvað finnst þér?


Eru ekki kosningar framundan?

Mótmælin eru að hafa áhrif, Geir farinn, þó óska ég honum góðs gengis í baráttunni við sín veikindi.

Jónas að fara, gott ef satt er.

Nú er Þorgerður Katrín við stjórnvölinn, þá fýkur Seðlabankastjórnin öll, þetta er að skila árangri en samt finnst mér vera komin kosningalykt af þessu öllu.


mbl.is Björgvin segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af mótmælum

Ég mótmæli heima í dag, sit heima og mótmæli ummælum Harðar Torfa, nú er ég ekki sammála honum um að mótmælin hafi engu skilað, það er búið að ákveða að kjósa á bara eftir að geirnegla daginn, þá mun stjórnin fara frá, trúlega öll. Hörður vill að allir á þingi fari heim ekki seinna en strax, helst í gær fyrir hádegi. Í síðasta lagi þegar mótmælum líkur í dag. Nú er svo að þeir sem krefjast margs, fá ekki alltaf allt, þeim finnst þeir líka ekki hafa fengið neitt, ef þeir fá ekki allt.

Auðvitað var það ekki nógu flott að Geir skyldi ekki hlíða herði fyrir 14 laugardögum og pakka saman og segja bless við  Sollu. En nú er Geir búinn að segja bless - hann metur heilsuna meira en pólitíkina- en að hann segi bless er ekki nóg fyrir Hörð. Hörður vill að Geir standi upp og segi ég fór af því að Hörður & co var að mótmæla mér og auðvitað verður Hörður sár.

Hver svo sem forsenda þess er að Geir er farinn er ég ánægður með að hann sé hættur í pólitík (maðurinn er óvitlaus sem betur fer) Það að hann þurfi að hætta af heilsufarsástæðum er ég ekki eins ánægður með, betra hefði verið að vinna hann á velli, frekar en að vera dæmdur sigurinn á tæknigetu.

Bloggheimur skuldar mér helling, öll olíufélögin skulda mér helling eftir daginn í gær, eins og þjóð veit (þjóð veit þá 3 vita) þá vinn ég á nóttunni. Í gær mætti ég illa fyrir kallaður í vinnuna, beint úr bælinu og mætti rétt fyrir miðnætti. Svo þegar ég er að aka um Selfoss í nótt sé að verð á bensíni er komið þar niður í 132 kr. (verð á bensíni á Selfossi hefur aldrei verið í takt við verðið hér í borginni) þannig að þegar ég kem í bæinn, þá kíkka ég eftir verði á Orkan við Dalbraut, OB við Smárann og Egó við Hliðarsmára, jú jú bensínið er á sama verði allstaðar 132 svo að ég ákvað að fylla á tankinn en ég er með AO lykil og hugsaði mér gott til glóðarinnar að fá bensínið þar á 132 kr. mínus 2 sem lykillinn gefur mér.......en ó nei AO var með bensínið á 142!!!!! ræningjar hugsaði ég ætli þeir verði síðastir til að lækka núna ( ekki þeirra stíll sko) svo ég ákvað að taka bensín í ÓB við smáralindina (gegnt smáralindinn ) og fá þar bensín lítrann á 132 (hann var jú auglýstur á það þegar ég kom í bæinn um kl 07) afsláttarlaust það myndi muna 10 kall á lítrann, (ég var með galtóman tank, löngu kominn á gula hættu ljósið) en nei viti menn, verðið komið í 142 og ég bara shjitt tékka á Orkunni, svona frekar fúll en nei nei búið að hækka ( ég sá að síðasti sem tók bensín hafði fengið það á 132 kr.) Svo ég hóaði í vinnufélaga og sagði honum farir mínar ekki sléttar og hann bara hló og spurði hvort ég hefði ekki orðið var við að Shell gaf 10 kr afslátt útaf Bóndadeginum og hinir fylgdu í kjölfarið. Ég hefði betur fengið mér kaffi áður en ég fór í vinnuna og sleppt því að geyma að taka bensín þar til ég kæmi til baka í morgun..........frestur er á illu bestur............tja eða verstur.

Góðar stundir, ég kominn í gott skap með sígó og morgunkaffi (heilög stund)

ps svo er annað mál hvort einhver les þetta.......en það er alfarið á ábyrgð Halla HægriFrjálslynda úr flokkslausa Eyjafirði.


Gættu að hvað þú segir Þorgerður Katrín

Ekki hélt ég að ég ætti eftir að vera þér svo innilega ósammála að meira ósammála þér er ekki hægt að vera. Nú dugar ekki skrúðmælgi eða reyna að brosa og vera sæt (ég veit að þú velur ekki myndir með fréttum af þér). Búðu þig undir að þið á Alþingi okkar Íslendinga verðið ekki "næstum haldið í herkví" það gæti nefnilega gerst að ykkur yrði á endanum haldið í herkví þar til þið segið af ykkur, "lætin óþægilegu" eru nefnilega rétt að byrja. Þið komist ekki út fyrir okkur "lýðnum" og við komumst ekki inn til að reka ykkur út fyrir lögreglunni (ykkar). Við viljum bara réttlæti (að ríkisstjórnin segi af sér) en höfum ekki lögreglu til að vernda okkur fyrir óréttlæti ykkar. þið sigið lögreglunni á okkur, ef við hefðum sama vald, að beita lögreglunni á þá sem beita okkur óréttlæti, hvað tæki langan tíma að smala út úr Alþingishúsinu?. Ég er ekki að hvetja til óeirða þau bara gerast við óbreytt ástand í málefnum þjóðarinnar. Víst voru þarna krakkar í dag sem mættu til að vera með "hasar" við lögregluna þau fengu að kenna á því hvað það getur kostað þau, að vísu sum hver óverðskuldað því æsingur lögreglunnar í að vera með "axjón" var ekki síst neitt minni hjá sumum, þetta sá ég vegna þess að ég varð vitni að sumu öðru ekki (sem betur fer). Myndrænn æsingur vekur alltaf athygli sjónvarpsins fyrst.Viljum við að uppúr sjóði nei......en farið þá að gera eitthvað á þingi annað en að pæla í hvort selja eigi vín í 10-11 eða Hagkaup eða mótmæla eldarnarkerfi austur Evrópu okkur er slétt sama um það en okkur er ekki sama um hag heimilanna í landinu, það hlýtur að eiga að hafa forgang og dagskrá Alþingis á að markast að öllu leyti (ekki bara sýndarmennsku) af því.

Eigið svo góðar stundir, nú ætla ég að fara og bæta mér upp kaffitapið í dag og fá mér góðan kaffisopa.


mbl.is Mótmæli mega ekki snúast upp í andhverfu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þráhyggja SKK

Ef ég væri sí og æ tuðandi um sama hlutinn í minni vinnu, þá yrði ég sennilega sendur til lækknis að leita mér lækkninga við þráhyggju. Þessi þráhyggja SKK um vínsölu í Bónus eða ekki er að verða hlægileg barátta hans við að efna loforð til handa þeim er kostuðu kosningabaráttu hans í síðustu kosningum og prófkjörsbaráttu.
Þingmenn og þar með talinn títtnefndur Sigurður Kári hljóta að hafa verið á Mars í jólaleyfinu sínu ef ástandið í þjóðfélagsmálum Íslands er þeim jafn víðs fjarri og dagskrá Alþingis í dag (1. dag eftir jólaleyfi) ber vott um.
Auðvitað vilja þeir svo ekki kosningar núna, það vita þeir, flestir, að er tapað spil fyrir þá, þeir nota öll trixin í bókinni til að telja þjóðinni trú um það.

Nú er að vita hvort næst verður ráðist til inngöngu í hið háa Alþingi, ég er nokkurnveginn viss um að lögreglan hefði ekki getað stöðvað það ef allur sá hópur sem var við Alþingi í dag hefði ákveðið einróma að ráðast til inngöngu við allar inngöngudyr þingsins....ég er ekki viss.

Þingmenn gera ekkert fyrir þjóðina, því ætti hún að gera eitthvað fyrir þingmenn eins og t.d. gefa þeim vinnufrið til að ákveða andstöðu við eldflaugavarnakerfi í Austur-Evrópu. Er þetta það brýnasta sem Steingrímur J. hefur sem innlegg í það að bjarga þjóðarskútunni?


mbl.is Segir sjálfsagt að fresta áfengismáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband