Allt er þá þrennt er?

Og full reynt í fjórða sinn.......eða er það ekki, hann nr. 1 braut útivistarreglur (sekt?) nr. 2 stal bíl (setkt?) nr. 3 ók réttindalaus (sekt já). Er ólögráða og því þurfa foreldrar að borga sektina (hver sem svo borgar á endanum).

Hvað voru foreldrarnir að hugsa (sváfu kannski) en það hlítur að hafa verið góð aukarefsing að þurfa að bíða eftir að pabbi og mamma kæmu að ná í kauða ( í taxa væntanlega því hann var jú á bílnum).

Hvort þetta seinki eitthvað bílprófsaldrinum veit ég ekki en það mætti alveg gerast. Kannski einhver mér fróðari upplýsi mig um það.

Svo er bara að vona að ég hafi nægjanlegt að kók & prins að moða úr eftir leikinn á morgun sem Liverpool vonandi vinnur þó sumir leikmenn séu tæpari á meiðslum en aðrir.

Eigið svo góðar stundir.

 


mbl.is Réttindalaus á rúntinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband