Á ég að vera lifandi?

Fólk sem að fæddist fyrir 1990 ætti að vera dáið!!!
(eða vorum við bara heppin??)

Já, samkvæmt löggjöfum og skriffinnum nútímans ættu þau okkar sem voru börn
á 5., 6., 7. og 8. áratuga síðustu aldar ekki að hafa lifað af.


HVERS VEGNA VAR ÞESSI NIÐURSTAÐA OKKAR SVONA?

-Jú, barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu.

-Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum og þegar við
hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm.

-Sem börn sátum við í bílum án öryggisbelta og/eða púða.

-Að fá far á vörubílspalli var sérlega gaman.

-Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar lentu
í offituvandamálum, því við vorum alltaf úti að leika

-Við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni
án þess að nokkur létist.

-Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum
á honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt
bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið.

-Við fórum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og
komum aftur heim í kvöldmat Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir
daginn.

-Engir farsímar. Ha, engir farsímar? Óhugsandi! Sumir áttu litlar
talstöðvar sem var flott að eiga!

-Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X-box, enga tölvuleiki, ekki
fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gervihnattasjónvarp, ekki
heimabíó, farsíma, heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu.
-Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá.

-Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn
var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að
kenna neinum um? nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi?

-Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það.

-Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli
og átum Maðka og reyktum njóla. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg
augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar og
margir gáfust upp á fyrsta njólanum!

-Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og
létum eins og heima hjá okkur.

-Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu,
eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa. Svo þegar
aldurinn sagði til sín fórum við í kossaleik og eignuðumst kærustu/kærasta.

-Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur - Við
stjórnuðum okkur sjálf.

-Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk.
Hræðilegt.... En þeir lifðu af.

-Engin vissi hvað Rítalín var og engin bruddi pillur sem barn.

-Við fórum í sunnudagsskóla eða sóttum KFUM og K, sungum og vorum í
Skátunum og lærðum hnúta og kurteisi.

-Ef það sprakk á hjólinu lagfærðum við það í sameiningu og alveg sjálf.

-Morgunkornið okkar var m.a. TRIX morgunkorn, og við lifðum af litarefnið í
því...
OG AFLEIÐINGIN ER ÞESSI!


Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda. Við áttum
frelsi, sigra ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt
saman. Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og
reglur um líf okkar sem þeir segja að sé 'okkur sjálfum fyrir bestu'?.Þessi
kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, góð að leysa
vandamál og bestu fjárfestar nokkru sinni.

Þetta er gamalt blogg sem ég stal frá gömlum ircara nú bloggvini, þeir sem þekkja hana best segja að hún sé AMMA irc-sins, ég veit ekkert um það en hún var á irc þegar ég byrjaði þar, fyrir ekkert svo mörgum áratugum, og er þar enn (alla vega stundum) og hún bloggar (stundum) þegar liggur vel á henni (líka þegar liggur illa á henni) og hún býr til gott kaffi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hver ætti svo sem að drepast af því að vera bara eðlilegur?

Takk fyrir síðast og eigðu góðan dag.
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.5.2009 kl. 14:13

2 Smámynd: Sverrir Einarsson

Sama til þín og ykkar allra

Sverrir Einarsson, 3.5.2009 kl. 14:35

3 identicon

Sæll Sverrir þú komst til okkar á hittingin á Akureyri, mig langar til að þakka þér fyrir komuna og njóttu þess að koma aftur.

Næst verðum við á Laugum hjá Dóru og ég tel dagana.

Kveðja Ásgerður

Ásgerður (IP-tala skráð) 4.5.2009 kl. 21:16

4 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

Kvitt.

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 7.5.2009 kl. 23:48

5 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Loksins rambaði ég inn á síðuna þína félagi og skrifaði eitthvað í leiðinni....

Takk fyrir síðast og ég get staðfest það að þú ert frekar ólíkur höfundarmyndinni....

En kjaftfori Apinn það smellpassar, við Víðir náðum því þó réttu og látum hugrenningana um útlitið bíða betri tíma.....

Sammála þér það er furðulegur andskoti að við skulum vera á lífi eftir að hafa gengið í gegnum frekar venjulega æsku...

Sumt er náttúrulega ekki prenthæft og börnin hafa akkúrat ekkert gott af því að vita í detail alla þá hluti sem framkvæmdir voru. Það er nóg að við berum þá reynslu....

Hallgrímur Guðmundsson, 9.5.2009 kl. 21:30

6 identicon

Það er gaman að hafa fæðst árið 1956. Heima hjá mér kom til dæmis ekki rafmagn fyr en árið 1964, við krakkarnir vorum stundum skylin eftir ein heima með olíulampana á kvöldin og húsið er óbrunnið enn. Ég andskotaðist ósyntur í ánni þótt hún væri í foráttu vexti á vorin og ég druknaði ekki, maður fór í langa göngutúra upp í heiði og komst altaf heim af sjálfsdáðun. Maður var búinn að aka bæði bílum og traktorum árum saman löngu fyrir prófaldur og engin slys henntu. Svona mætti lengi telja upp, já það er gaman að hafa verið fæddur árið 1956.

Kveðja Stebbi.

Stefán Bj Steindal (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 18:38

7 identicon

Það var nú t.d. standardinn að þegar krakkar voru nógu þungir til að ná að kúpla og bremsa á gamla Ferguson (dráttarvél fyrir borgarbörnin) þá töldust menn færir um að vinna á tækjunum :)    8-10 ára ekki óalgengt

Melrakki (IP-tala skráð) 6.10.2009 kl. 04:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband