Ein gömul og góð vísa....vonandi rétt.
12.9.2008 | 16:24
Ég verð þá bara leiðréttur ef ekki er rétt með farið.
Þetta kvað víst aðkomumaður sem var að koma að landi.
Farðu í rassgat Raufarhöfn
rottni fúli drullu pollur
Andskotinn á engin nöfn
yfir öll þín forar söfn.
Heimaður á að hafa svarað.
Þótt Raufarhöfn skorti þann andlega auð
og ei sé það fegurðar staður
Að lasta sitt eigið lifibrauð
er illt af þér aðkomu maður.
Og sjóarinn svaraði
Ég vinn fyirr matnum á mannlegann hátt
og mun ég því greið'ann að fullu
En hver getur stöðvað þann guðlega mátt
sem geri allt löðrandi í drullu.
Eigið svo góðar stndir.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.