Hvað með bílstjórana??
16.7.2008 | 11:15
Verður ekki gerð sama krafa á bílstjórana, þeir líti vel út séu yngri og myndarlegri.
Verður gerð krafa um bólstruð sæti (og þá hnífar ekki leyfðir í farangri).
Og það veigamesta til að nýjir viðskiftavinir bætist í hópinn, verður gerð krafa um íslenskukunnáttu og að bílstjórarnir þekki að mestu allt leiðarkerfið en ekki bara þá leið sem þeir þurfa að aka sjálfir?
Ég þekki ekki leiðarkerfið út í hörgul lengur en gæti stundum hugsað mér að taka strætó en þá hef ég lent í því að þurfa að spyrja hvaða strætó ég eigi að taka til að komast á leiðarenda og tvisvar hef ég orðið fyrir þvi að bílstjórinn talaði bara móðurmál sitt en enga íslensku og þar með var sú strætóferð fyrir bí.
ps svo á Gísli Marteinn að gera kröfu um að nýju rúturnar verði útbúnar vaski og WC þá fyrst fer ég að fara í lengri ferðir með strætó ( og kannski oftar)
Strætó verði glæsilegri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.