Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

STUNDIN NÁLGAST

Selma Margrét Florida 2006

 Jæja loksins. Nú stendur til að  fara að blogga hér aftur því stundin  nálgast óðum  að  við  feðginin förum  til  Florida  aftur,  bara gaman að því,  þessi mynd sem er hér á síðunni er tekin á 1. degi  í ferðinni sem við fórum  árið  2006 mér  fannst ekki við hæfi að  setja myndir úr ferðinn sem við fórum 2002 enda  skvísan þá bara  rétt að verða  12 ára.

Hún á eftir að standa á þessari  sömu  götu (International Drive) og  þá mun hún vera  sennilega á  leiðinni á Ponderosa veitingastaðinn okkar við þessa götu, þarna er líka frábært kaffihús Bad Ass sem er með interneti sem við ættlum að nota til að setja myndir inn á þessa síðu meðan við verðum úti en planið er hálfur mánuður frá 16 mai - 31 mai, skvísan er voða happy með það að þurfa ekki að eyða 17. júní úti en það var gert þarna 2006 og á  Krít 2007 við lítinn fögnuð skvísunnar, sjálfum var mér slétt sama hvar við vorum á þessum degi.Jæja þá er komið nóg af þessu í bili og tími til kominn að fara og stilla þessa mynd af hvar ég vil hafa hana....nógu erfitt var að læra að koma þessu hér fyrir en núna er að stilla hvar hún verður miðað við textann hérna. 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband